Ekki einn í útlöndum anymore....


Saturday, May 27, 2006

Hola...
Ætla að byrja á því að tilkynna að Davíð K. Jónsson vann spurningakeppnina. Til hamingju Davíð, nú vantar mig bara að vita hvernig GSM síma þú átt svo ég geti sent til þín verðlaunin.
Annars er maður kominn í frí núna !!! búin að vera vægast sagt strembin og stressandi vika !! Þessi flutningur er búinn að taka sinn toll og þetta frí er kærkomið. Egyptaland á mánudag , ekki verður það leiðinlegt.
Er maður búinn að grafa upp öll sólarfötin sín ... veitir ekki af , þar sem þar er um 35 stiga hiti þarna ... lægst 21 gráða !! vona bara að ég eigi eftir að lifa þetta af ;)
Svo er stefnan sett á að skella sér í sjóinn eins og tvisvar og fara að kafa á meðan maður er þarna, á víst að vera alveg svakalega flott.
Best að kveðja að sinni... á leið inn í bæ í klippingu ..
Ciao ... Birgir

|