Ekki einn í útlöndum anymore....


Wednesday, August 24, 2005

Sælir góðir hálsar....
Hér í Inglaterra er allt í góðum gír.
Löng og góð helgi framundan, bank holiday á mánudag :o)
Annars hefur ekki mikið verið um að vera sem vert er að minnast á undanfarið.... lífið bara gengur sinn gang.
Tottenham - Chelsea á laugardaginn !!!!! verður svakafjör þar á ferð.. ekki spurning. Vona bara að mínir menn haldi áfram þessu góða gengi.
Annars gæti eitthvað verið að gerast í kvennamálum hérna... allt á byrjunarstigi þannig að maður verður bara að bíða til betri tíma að segja nánari fréttir af því !!!
Svo var ég að ganga frá tölvukaupum í gær... tekur reyndar smátíma að fara í gegn en vonandi verður maður kominn með 1 stk. tölvu í næstu viku !!! Dell lappari.
Jæja, best að koma sér aftur til vinnu.... kveðja frá UK
Birgir

|