Ekki einn í útlöndum anymore....


Wednesday, November 23, 2005

Alveg að koma helgi.....
gaman gaman !!!
Skítakuldi hérna í St. Albans , búið að vera hrikaleg frostharka hérna !!! maður skildi eftir öll hlýju fötin eftir á Íslandi þegar ég flutti út, þannig að það er lítið um hlý föt í skápnum hjá manni um þessar mundir. En það lifist.
Búið að vera busy í vinnunni eins og vanalega, og fer vaxandi með degi hverjum.
Stefnan er sett á að reyna að versla nokkrar jólagjafir um helgina, fara í Brent Cross eða til Watford eða eitthvað hérna í nágrenninu, þar sem gott er að versla. Um að gera að reyna að klára þetta í tíma, enda um hrikalega leiðinlegan hlut að ræða !!! allt of mikið af fólki í búðunum á þessum tíma ársins sem er alveg skelfilegt.
Lítið fréttnæmt héðan frá St. Albans, farinn að hlakka til að koma til Íslands um jólin.. verður mjög fínt geri ég ráð fyrir.
Champ league að fara að byrja, best að skella sér í sturtu og kíkja svo aðeins á leikina.... verður hægt að velja um 4-5 leiki í beinni útsendingu... erfitt val þar á ferð
Kveðja
Birgir

|