Veðurblíða hér í St. Albans....
Á víst að vera rúmlega 25 stigi hiti hérna í dag og glampandi sól..... líklega eitthvað svipað og hefur verið á Íslandi undanfarið !!!!
Annars var LOST að byrja hérna í sjónvarpinu í gær... og þeir sem ég er að vinna með og horfðu á þáttinn leist mjög vel á, þetta er alger snilld.. Er bara að bíða eftir að Arnar bro sendi mér þættina sem mig vantar inní... svo maður getur nú klárað að horfa á seríuna.
Fór á æfingu í gær, en tímabilið hjá okkur byrjar 03. september. Höfum við misst 2-3 leikmenn frá thví í fyrra en höfum fengið nýja menn í staðinn. Held ég að nýju mennirnir séu sterkari en þeir sem við misstum þannig að það er bara gott mál.. Eigum líka fyrir höndum mun erfiðara prógram í vetur en síðasta. Nú er bara mál að halda áfram að skokka eftir vinnu og koma sér í form.
Er mikið að spá í að skella mér til Watford um helgina að kíkja í PC world... athuga með verð á fartölvum !! sjá hvort að maður geti ekki fengið einhverja góða á bærilegu verði. Þannig að þá get ég verið með nettengingu heima og þ.a.a. hringt heim til Íslands fyrir nánast ekkert.... Sjáum hvað setur.
Sævar.... athugaðu nú fyrir mig hvort þú getir ekki reddað mér einhverju dæmi hérna fyrir síðuna mína svo ég geti nú sett myndir inn á hana.... Yrði meira en lítið þakklátur fyrir það.
Kv. Birgir
|