Ekki einn í útlöndum anymore....


Monday, September 06, 2004

Frá Íslandi....
Lífið frekar súrt hérna á Íslandi.. maður er einhvern veginn engann veginn stefndur í eitt né neitt. Hausinn á manni er ekki alveg skrúfaður á réttan stað held ég. Hélt að maður myndi hafa gott af því að breyta aðeins um umhverfi, en ég hafði rangt fyrir mér.... maður fer að hugsa um að syngja þarna lagið með sólstrandargæjunum " af hverju get ég ekki.... lifað eðlulegu lífi.... af hverju get ég ekki.... o.s.frv.
Annar er maður ekki búinn að gera mikið hérna... smá djamm á laugardag, sorglegur leikur á sunnudag... golf , lunch og afslöppun á mánudegi... og nú er klukkan rúmlega 22.00 og ég stórefa að maður geri nokkuð...
Þangað til næst...
Birgir

|