Ekki einn í útlöndum anymore....


Monday, June 06, 2005

Halló...
Hér er ég enn og aftur....
Lítið markvert búið að gerast hérna síðustu vikuna, var að drukkna í vinnu hérna í síðustu viku og tókst að vinna einhverja 45 klst vinnuviku !!! og það var frí á mánudeginum.
Fór í Paintball með vinnunni á laugardag, magnað fjör. Vorum í rúma 3 tíma þarna og endaði maður á að plaffa ca. 1000 boltum. Frábært svæði sem við fórum á, paintball inn í skógi er frekar geggjað.. svo voru líka opin svæði.
Annars var lítið gert um helgina, alveg búinn eftir paintball dæmið. Ný vinnuvika tekin við...
Stefnan er sett á að kíkja á Sin City annað kvöld, hefur maður heyrt mjög misjafna dóma um hana.. alveg frábær mynd eða ekkert sérstök !!! annaðhvort eða.
Ef einhver vill deila með mér hvað var gert um helgina væri það mjög gaman... annars heyrumst við bara við tækifæri og ég bið að heilsa öllum landsmönnum fjær og nær.. líka í innsveitum
Birgir

|