Á leið til London....
að hitta Arnar (aka. Ayatollah Komeni hershöfðingja.. eins og Sævar kallar hann !! )
Er stefnan sett á djúsí kvöld að hætti Londonbúa.. verður kíkt eitthvað til að fá sér í gogginn og svo á að setja stefnuna á einhvern svæsinn næturklúbb í London.. vona bara að Arnar og hans föruneyti, séu ekki búnir að drekka frá sér allt vit. Því það er ekki glæta að komast inn á næturklúbb í London ef dyraverðirnir eru á því að viðkomandi sé drukkinn... þá sjá þeir fram á það að klúbburinn græðir ekkert á þeim gest þetta kvöldið !!
Svo er stórleikur á morgun í L´pool... L´pool - Everton. Ætli ég hinkri ekki aðeins í London á morgun og kíki á þennan leik með bro.
Annars ber það helst til tíðinda að það munaði bara 3 tölum að ég myndi vinna 86 milljónir punda í lottóinu um síðustu helgi... var ekkert smá fúll !!! en ég er greinilega að nálgast réttu tölurnar, hlýtur að fara að detta inn fljótlega.
Ekkert smá var ég ánægður þegar ég frétti að Leiknir hefði unnið HK í gær... þoli ekki HK og súkkulaðidrenginn á hýrabolnum.... , man eftir leik um árið gegn HK.. einhver Leiknismaður lenti í smá samstuði við Gulla markmann og hann lá eftir í valnum eins og stunginn grís... og einhver af áhorfendabekkjunum öskraði inná : " Hvað er að Gulli ? Sprakk bóla ? !!!! " nokkuð sleipt komment þar á ferð ... hehhe. En ég var samt ánægður með komment hans á leikinn í gær, kannski er þar á ferð ágætis náungi.. hver veit !!!
Kveðja frá St. Albans... best að fara að koma sér út á lestarstöð..
Birgir
|